Fara í efni

Næsta höfn: Skagafjörður

26.11.2026
Samtal um framtíð skemmtiferðaskipa í Skagafirði 2030–2034.


Skagafjörður boðar til samtals við ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu um komu skemmtiferðaskipa í sveitarfélagið þriðjudaginn 8. desember kl. 17:00 á Kaffi Krók.

Starfar þú í ferðaþjónustu í Skagafirði? Við viljum heyra frá þér.

Á fundinum verða kynnt drög að stefnu og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa 2030–2034 sem unnin var af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Fulltrúar frá Iceland Travel, Cruise Iceland og SSNV koma á fundinn og deila sinni reynslu og sýn á tækifærin sem felast í komu skemmtiferðaskipa í Skagafjörð.

Sveitarfélagið hvetur alla ferðaþjónustuaðila til að taka þátt í samtalinu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Skráning hér 

Boðið verður upp á súpu og kaffi.