Fara í efni

Móttaka framboða hjá sveitarfélaginu Skagafirði

07.04.2026

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk. klukkan 12:00.

Yfirkjörstjórn Skagafjarðar mun föstudaginn 10. apríl hafa aðsetur í fundarsal sveitarstjórnar á 2. hæð í Húsi Frítímans, Sæmundargötu 7a, Sauðárkróki til að taka á móti framboðum frá klukkan 11:00 til 12:00 og veita þar framboðsgögnum viðtöku. Öll framboð skulu tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórnar eigi síðar en klukkan 12:00 á hádegi þann dag. Yfirkjörstjórn tekur einnig á móti gögnum rafrænt á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja framboðum:

  • Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra, samkvæmt skrá dómsmálaráðuneytisins.
    • Hyggist stjórnmálasamtök sem ekki hafa skráðan listabókstaf samkvæmt auglýsingu um listabókstafi stjórnmálasamtaka nr. 54/2025 í B-deild Stjórnartíðinda, bjóða fram lista skulu þau um leið og framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar leggja þar fram beiðni um úthlutun listabókstafs og staðfestingu á heiti framboðs.
  • Upplýsingar um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans, ásamt samþykki þeirra.
  • Framboðslisti, ásamt skriflegri yfirlýsingu allra þeirra sem á listunum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listunum, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.
  • Yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu – meðmæli.
    • Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Skagafirði um stuðning, að lágmarki 40 og að hámarki 80 meðmælendur. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista við hverjar kosningar. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs. Kjörstjórnarmenn í landskjörstjórn, yfirkjörstjórnum og umdæmiskjörstjórnum geta ekki vera meðmælendur framboðs.
    • Rafræn meðmælasöfnun í Skagafirði.
    • Hægt er að taka skýrslu út úr meðmælakerfinu og skila með eða tiltaka ef meðmælum var safnað rafrænt.
    • Frekari upplýsingar um meðmælasöfnun.
    • Heimilt er að safna meðmælum á pappír. Mælst er til þess að framboð slái meðmælin inn í rafræna meðmælakerfið. Skila þarf inn frumriti til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista má finna í reglugerð nr. 254/2024 og þá má einnig finna nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum á vef landskjörstjórnar.

Kjörstjórnin mun mánudaginn 13. apríl tilkynna um gild framboð.

Ef einhverjar spurningar vakna geta framboð sett sig í samband við yfirkjörstjórn sveitarfélagsins, Hjalta Árnason formann, í síma 895 8619, eða landskjörstjórn á postur@landskjorstjorn.is eða í síma 540-7500.

- Yfirkjörstjórn Skagafjarðar -

Hjalti Árnason, formaður

Gunnar Þór Sveinsson

Ásgrímur Sigurbjörnsson