Fara í efni

Mótaskrá Unglingalandsmóts UMFÍ komin á netið

02.08.2023

Unglingalandsmótið verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina og er mótaskráin aðgengileg á vef UMFÍ. Í skránni eru allar upplýsingar um dagskrá, afþreyingu og opnar greinar sem ekki þarf að skrá sig í og alla þá viðburði sem í boði eru en keppt verður í 18 greinum.  Einnig er kort af Sauðárkróki með upplýsingum um staðsetningu keppnisgreina og viðburða  og auglýsingar styrktaraðila og þeirra fjölmörgu bakhjarla sem styðja við mótið þetta árið. 
Þetta er skráin sem þátttakendur og gestir Unglingalandsmótsins geta haft gagn af að hafa í vasanum og símanum á meðan á móti stendur. 

Mótaskrá UMFÍ 3.-6. ágúst