Fara í efni

Met í afkomu Hafnarsjóðs Skagafjarðar

26.03.2026

Afkoma Hafnarsjóðs Skagafjarðar fyrir árið 2025 var afar góð og hefur aldrei verið betri. Rekstrarhagnaður ársins var 81,6 milljónir eftir afskriftir og fjármagnsgjöld. Eigið fé Hafnarsjóðs var 718 milljónir og langtímaskuldir 118 milljónir.

Til gaman má nefna að á síðasta ári var landað alls 24.414 tonnum á Sauðárkróki og 65 tonnum á Hofsósi. Þá voru skemmtiferðaskipakomur alls 25 talsins; 11 komur voru í Drangey, 5 til Hofsóss og 9 til Sauðárkróks.

Fraktskipakomur voru 69 á árinu og voru rúm 21.000 tonn flutt frá höfninni og 24.000 tonn til hafnarinnar.

Þessi afkoma undirstrikar mikilvægi hafnanna fyrir atvinnulíf í Skagafirði. Með traustum rekstri og vaxandi umsvifum er Hafnarsjóður vel í stakk búinn til að styðja áfram við fjölbreytt verkefni og framtíðarsýn hafnarsvæðisins.