Menntastefna Skagafjarðar 2026–2031 hefur tekið gildi
Menntastefna Skagafjarðar til ársins 2031 hefur nú tekið gildi. Stefnan setur heildstæða framtíðarsýn fyrir mennta- og uppeldisstarf í sveitarfélaginu og nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla, auk annarra þátta sem snúa að námi, velferð og þroska barna og ungmenna. Ítarleg aðgerðaráætlun fylgir með stefnunni sem skilgreinir helstu áherslur og verkefni á gildistíma hennar. Með aðgerðaráætluninni er lögð áhersla á markvissa innleiðingu stefnunnar, skýra forgangsröðun og reglubundið mat á árangri. Þar með er stefnt að því að menntastefnan verði lifandi stjórntæki sem styður raunverulega við þróun skólastarfs í Skagafirði.
Stefnan var unnin í víðtæku samráðsferli þar sem stýrihópur fór með umsjón vinnunnar í samstarfi við ráðgjafa frá Ásgarði skólaþjónustu. Starfsfólk leik-, grunn- og tónlistarskóla tók virkan þátt í mótun stefnunnar ásamt nemendum skólanna. Þá gafst íbúum Skagafjarðar jafnframt kostur á að leggja sitt af mörkum.
Menntastefna Skagafjarðar byggir á skýrri sýn um jöfn tækifæri, vellíðan og faglegt skólastarf þar sem áhersla er lögð á samfellu í námi, samstarf og stöðugar umbætur. Þrjú grunngildi liggja til grundvallar, en þau eru virðing, metnaður og fagmennska.
Jafnframt ber að nefna að menntastefnan tekur mið af landsstefnu stjórnvalda í menntamálum og endurspeglar jafnframt sérstakar aðstæður og styrkleika sveitarfélagsins. Með samþykkt hennar er lagður traustur grunnur að áframhaldandi þróun menntunar í Skagafirði, þar sem horft er til framtíðar með hag barna og ungmenna að leiðarljósi.
Menntastefnu Skagafjarðar 2026–2031 má nálgast hér.