Mark Watson dagurinn á Byggðasafninu
14.07.2026
Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ þann 18. júlí, frá kl. 15:30 til 17:30.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Sögusetur íslenska fjárhundsins og hvetur Byggðasafnið íbúar og gesti til að sækja það heim í tilefni dagsins. Watson var mikill Íslandsvinur og eiga Skagfirðingar honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans Dagur íslenska fjárhundsins.
Í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum.
Á kaffihúsi safnsins í Áshúsi er góðgæti í boði fyrir menn og hunda.
Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.
Verið velkomin í Glaumbæ