Fara í efni

Malbikun á hluta Skagfirðingabrautar

21.08.2019
Hjáleiðir vegna malbikunar á Skagfirðingabraut

Fimmtudaginn 22. ágúst verður malbikaður hluti Skagfirðingabrautar á Sauðárkróki, frá N1 og norður fyrir gatnamót Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar.
Vinnusvæðið verður lokað fyrir umferð frá kl 08:30 og fram á kvöld. Við bendum ökumönnum á að sýna tillitssemi og nýta hjáleiðir sem sjá má á meðfylgjandi mynd.