Fara í efni

Maður í mislitum sokkum í Höfðaborg

23.03.2017

Leikfélag Hofsóss sýnir gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar í Höfðaborg á Hofsósi. 

Maður í mislitum sokkum fjallar um ekkju á áttræðisaldri sem finnur ókunnan mann í framsætinu á bíl sínum fyrir utan Bónus. Maðurinn veit ekki nafn sitt né hvar hann býr en hann er í mislitum sokkum. Af ótta við almenningsálitið ákveður ekkjan að taka hann með sér heim. Vinkonur ekkjunnar og eiginmenn þeirra fléttast inn í málið með tilheyrandi skemmtilegheitum.

Frumsýning föstudag 24. mars kl. 20:30

2. sýning laugardag 25. mars kl. 20:30

3. sýning mánudag 27. mars kl. 20:30

4. sýning mánudag 3. apríl kl. 20:30

5. sýning miðvikudag 5. apríl kl. 20:30

6. sýning laugardag 8. apríl kl. 20:30

7. sýning sunnudag 9. apríl kl. 15:00

8. sýning fimmtudag 13. apríl, skírdag, kl. 22:00

Lokasýning laugardag 15. apríl kl. 20:30

 

Miðaverð kr. 3.000 fyrir fullorðna / kr. 2.500 fyrir ellilífeyrisþega / kr. 1.800 fyrir börn 6-14 ára.

Miðapantanir í síma 854 6737.