Fara í efni

Lúsíuhátíð og jólabingó

09.12.2015
Lúsíur í heimsókn í ráðhúsinu 2014

Lúsíuhátíð 6. bekkjar Árskóla er á morgun fimmtudaginn 10. desember. Lúsíurnar verða á ferðinni um Krókinn og munu syngja á ýmsum stöðum. Hátíðin endar í matsal Árskóla kl 17 með sannkölluðum Lúsíusöng og eru allir velkomnir í skólann.

Foreldrakaffi Árvistar er milli kl 14 og 16 þar sem boðið er upp á piparkökur með kaffinu og í Ársölum verður jólakakóhús hjá krökkunum á yngra stigi með kósýheitum, smákökum og jólatónlist kl 9:30.

10. bekkingar Árskóla eru með jólabingó kl 20 um kvöldið og er fjöldri góðra vinninga í boði.