Fara í efni

Lúsíuhátíð 6. bekkjar Árskóla 12. desember

11.12.2013

Hin árlega Lúsíuhátíð 6. bekkinga verður fimmtudaginn 12. desember þegar nemendurnir fara um bæinn og syngja Lúsíusöngva. Þau hefja sönginn í leikskólanum Ársölum kl. 10:30 um morguninn. Kl. 15 mæta þau á Heilbrigðisstofnunina og fara þaðan í Ráðhúsið. Eftir það fara þau í Byggðastofnun og Skagfirðingabúð og dagskráin endar með opnu húsi í Árskóla kl. 17 þar sem allir eru velkomnir.