Fara í efni

Lummudagar um helgina

26.06.2015
Frá Lummudögum

Lummudagarnir hófust í gær með setningarathöfn við sundlaugina á Sauðárkróki þar sem boðið var uppá fiskisúpu. Framundan er flott dagskrá um helgina og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í dag verður hægt að fara í loftbolta á grasfletinum á móti íþróttavellinum og sápuboltinn verður á sínum stað í Ártúninu kl 15:30. Íbúar eru hvattir til að vera með götugrill kl 19 og eiga góða stund með nágrönnunum sínum annaðhvort á föstudeginum eða laugardeginum. Slegið verður upp partýi í sundlaug Sauðárkróks kl 19:30 og eiga allir að mæta í fötum. Kvöldið endar svo á VSOT tónleikum í Bifröst, Villtir svanir og tófa, en þar koma saman ,,gamlir'' tónlistarmenn til að skemmta sjálfum sér og öðrum. Þetta er orðinn árviss viðburður og á orðið sinn fasta aðdáendahóp.

Formleg dagskrá laugardagsins hefst kl 14 með götumarkaði við Aðalgötuna á Sauðárkróki, lummukeppnin verður sunnan við safnaðarheimilið kl 14:30 og eru þeir sem ætla að taka þátt beðnir að koma með a.m.k. þrjár lummur fyrir dómnefndina. Wally fjöllistamaður mætir á svæðið kl 15:30 og leikur listir sínar og hægt er að skella sér í paintball og lazertag á grasfletinum á móti íþróttavellinum. Ekki má gleyma fyrirtækjunum á svæðinu en þau hafa ýmislegt að bjóða. Deginum lýkur síðan með tónlistarhátíðinni Drangey Music Festival á Reykjum á Reykjaströnd þar sem Emiliana Torrini, Jónas Sig. og ritvélarnar, Contalgen Funeral, Magni Ásgeirs og Úlfur, Úlfur stíga á stokk. Það ætti því engum að leiðast í Skagafirði um helgina.

Nánari dagskrá