Fara í efni

Lokunum innanbæjar á Sauðárkróki aflétt

28.09.2021

Búið er að aflétta lokunum innanbæjar á Sauðárkróki sem settar voru fyrr í kvöld vegna gruns um krapastíflu í Sauðá. Eftir skoðun þar tilbærra sérfræðinga, þegar veðri slotaði, kom í ljós að rennsli er orðið eðlilegt að nýju.
Er því öllum aðgerðum við Sauðá lokið.