Fara í efni

Lóð 25 á Nöfum laus til tímabundinnar leigu

14.04.2023
Lóð 25 er hér merkt með rauðu.

Skagafjörður auglýsir til tímabundinnar leigu Lóð 25 á Nöfum, F2337255, ræktunarland 1,25ha.

Leigutími frá 10. maí 2023 til 31. desember 2024.

Umsækjendur skulu tilgreina í umsókn hverskonar not þeir hugsa sér að hafa af landinu og hvort þeir hafi leyfi til búfjárhalds í þéttbýli.

Umsóknir má senda í tölvupósti til skagafjordur@skagafjordur.is eða afhenda í afgreiðslu Ráðhúss fyrir 29. apríl n.k.

Reglur um úthlutun lóða á Nöfum ofan Sauðárkróks.