Fara í efni

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn

21.02.2019

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. 

Umsóknarfrestur er til 22. mars nk. og mun ákvörðun úthlutunar liggja fyrir eigi síðar en 10. maí 2019.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu List fyrir alla, www.listfyriralla.is.