Fara í efni

Lestur úr nýjum bókum í Safnahúsi

15.11.2017
Lesið úr nýjum bókum í Safnahúsi 2015

Í kvöld 15. nóvember munu fjórir höfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum í Safnahúsi Skagfirðinga við Faxatorg á Sauðárkróki. Það eru Vilborg Davíðsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Illugi Jökulsson og Bjarni Harðarson sem munu lesa úr bókum sínum og einnig mun Hjalti Pálsson kynna Vlll. bindi Byggðasögu Skagafjarðar. Í þessu bindi er fjallað um Fellshrepp og Haganeshrepp.

Samkoman hefst kl 20 og eru allir velkomnir.