Fara í efni

Leikskólinn Ársalir auglýsir sumarstörf

14.04.2015

Laus sumarstörf á Leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki

Leikskólinn Ársalir óskar eftir að ráða 5 starfsmenn til sumarafleysinga frá 1. júní - 14. ágúst 2015. Vakin er athygli á því að leikskólinn verður lokaður frá 20. júlí - 3. ágúst. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomadi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2015

Sótt er um störfin á heimasíðu sveitarfélagsins (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.

Allar nánari upplýsingar veitir Anna Jóna Guðmundsdóttir leikskólastjóri í gegnum netfangið; arsalir@skagafjordur.is eða í síma 455-6090.