Fara í efni

Leikskólinn Ársalir auglýsir lausar stöður á næsta leikskólaári

13.06.2016

Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar

 

Matráður í 75% starfshlutfalli á eldra stigi. Vinnutími 07:45-13:45. Laust frá og með 8. ágúst 2016.

Starfsmaður í eldhúsi í 50% starfshlutfalli á eldra stigi. Vinnutími er frá 12:00-16:00. Laust frá og með 15. ágúst 2016

Skilavakt í 25% starfshlutfalli á eldra stigi. Vinnutími er frá 14:35-16:35. Laust frá og með 15. ágúst 2016.

Fjórar afleysingastöður í 100% starfshlutfalli. Vinnutími 08:15-16:15. Lausar frá 15. ágúst 2016 til 31. júlí 2017.

Leikskólakennari í 100% starfshlutfalli. Vinnutími 08:10-16:10. Laust frá og með 15. ágúst 2016.

 

Upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2016.

Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu eða íbúagátt sveitarfélagsins.

Allar nánari upplýsingar gefur Anna Jóna Guðmundsdóttir, leikskólastjóri í síma 455-6090 eða annajona@skagafjordur.is