Fara í efni

Leikskólinn Ársalir auglýsir lausar stöður

19.05.2014

 

Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki óskar eftir að ráða í eftirtaldar stöður:

Deildarstjóri:

Um er að ræða 100 % starfshlutfall, frá og með 11. ágúst 2014.

Leikskólakennarar:                                                                                                                              

Um er að ræða tvær stöður leikskólakennara, 100 % starfshlutfall frá 11. ágúst 2014.

Hæfniskröfur: 

  • Leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari.
  • Faglegur metnaður
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

 Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitarfélaga.

  

Starfsmenn í afleysingar: 

Um er að ræða tvær stöður starfsmanna í afleysingum, 100 % starfshlutfall frá 11. ágúst 2014 til 7. ágúst 2015, í eitt leikskólaár eða fram að væntanlegri sumarlokun 2015.

Ráðningarform: Tímabundin ráðning.

Hæfniskröfur: 

  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt Kjarasamningi Kjalar eða Öldunnar stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga.

 

Í Ársölum er unnið með SMT-skólafærni, Lífsleikni og Tákn með tali. Gott samstarf er við Árskóla á mörkum skólastiga. Ársalir er níu deilda leikskóli og næsta leikskólaár verða þar væntanlega 165 börn á aldrinum 1-6 ára.

 

Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. júní 2014.

Sótt er um störfin á heimasíðu Sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is.                                                                                                    

Nánari upplýsingar veitir Anna Jóna Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, í síma 455 6090 eða með því að senda fyrirspurn á arsalir@skagafjordur.is.

Sækja um