Leikritið Með allt á hreinu frumsýnt í dag, fimmtudaginn 26. mars
26.03.2026
Unglingastig Grunnskólans austan Vatna frumsýnir í dag, fimmtudaginn 26. mars, leikritið Með allt á hreinu.
Lofað er góðri skemmtun og miklum hlátri.
Sýnt er í Höfðaborg og hefst sýningin kl. 18:00. Aukasýning er síðan á morgun, föstudaginn 27. mars, kl. 20:00.
Miðapantanir í síma 847-7106.
Skagafjörður hvetur sem flesta til þess að kíkja á þessa frábæru sýningu.