Leik og sprell á Sauðárkróki 13. - 17. júlí
09.07.2026
Leik og Sprell verður á Sauðárkróki dagana 13. - 17. júlí frá kl. 09:00 - 12:00. Kennt verður í Húsi Frítímans.
Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Öll fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
Kennari námskeiðsins er Bára Lind Þórarinsdóttir.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is.
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com