Fara í efni

Leiðrétting á opnunartíma sundlaugarinnar í Varmahlíð

23.09.2014

Sundlaugin í VarmahlíðÞau leiðu mistök eru í auglýsingu um opnunartíma sundlauga í Skagafirði, í dagskrárriti Laufskálaréttar sem dreift hefur verið í hús í Skagafirði, að opnunartíma sunnudags í sundlauginni í Varmahlíð er ekki getið.

Sundlaugin í Varmahlíð verður opin um Laufskálaréttarhelgina á laugardegi (27. september) frá kl. 10-15 og á sunnudegi (28. september) frá kl. 10-15.

Aðra daga vikunnar er sundlaugin í Varmahlíð opin sem hér segir:

mánudaga og fimmtudaga kl.09:00 - 21:00

þriðjudaga og miðvikudaga kl.09:00 - 20:00
föstudaga kl. 09:00 - 14:00