Fara í efni

Leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 smitvarna

19.08.2020

Gefnar hafa verið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna.  Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum þar sem áhersla er lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og að: „Við erum öll almannavarnir“.

Vegna fjöldatakmarkana er mælst til þess að gestir komi ekki til réttarstarfa og að fjöldi aðila við réttarstörf sé ekki fleiri en 100 manns. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkunum. Hliðvarsla verður við aðkeyrslu að réttum og þangað inn verður aðeins hleypt þeim sem þar eiga erindi.

Allir sem taka þátt í göngum og réttum skulu hlaða niður smitrakningarappi almannavarna og ekki er mælst til þess að áfengi sé haft um hönd við réttarstörf. Fjallskálar eða húsnæði sem notað er við göngur eru eingöngu opin fyrir smala og þá sem hafa hlutverk í göngum eða leitum þann tíma sem göngur eða leitir standa yfir.

Nálgast má leiðbeiningarnar í heild hér.

Dagsetningar fjár- og stóðrétta í Sveitarfélaginu Skagafirði er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins undir "viðburðir."