Fara í efni

Leiðbeiningar og ráðstafanir um jól og áramót vegna Covid-19

30.11.2020

Á upplýsingasíðunni covid.is er farið yfir helstu leiðbeiningar og ráðstafanir um jól og áramót vegna Covid-19.

Rík hefð er fyrir því að fólk komi saman og njóti samverunnar og alls þess sem hátíðarnar hafa upp á að bjóða. Það er ljóst að hátíðin sem senn gengur í garð verður frábrugðin því sem við eigum að venjast. Samt sem áður höfum við ýmsa möguleika á því að gleðjast saman. Mælt er með því að við njótum t.d. rafrænna samverustunda, eigum góðar stundir með heimilisfólkinu, veljum jólavini (hverja við ætlum að hitta yfir hátíðarnar) og að við verslum á netinu ef hægt er.

Ef um heimboð er að ræða er mælt með því að við látum gesti vita um boðið með góðum fyrirvara svo þeir hafi tækifæri til að fara varlega dagana fyrir boðið, að við virðum fjöldatakmarkanir og tryggjum nándarmörk og einstaklingsbundnar smitvarnir, forðumst samskotsboð („pálínuboð") og hlaðborð, geymum handabönd, faðmlög og kossa til betri tíma og að við takmörkum sameiginlega snertifleti og þrífum þá oft og reglulega. 

Ef um ferðalög á milli svæða eða landa er að ræða er mikilvægt að huga að því hvernig höfum við og þau sem við ætlum að heimsækja hagað samskiptum við aðra í tvær vikur fram að brottför? Hafa átt sér stað náin samskipti við aðra en heimilisfólk? Eru einhver tilmæli eða takmarkanir í gildi vegna ferðalaga? Á Íslandi þarf til að mynda að fara í sóttkví við komuna til landsins. Í boði er 14 daga sóttkví sem hægt er að stytta um 5-6 daga ef farið er í sýnatöku við upphaf og lok sóttkvíar. Er smithættan á þínu búsetusvæði eða á svæðinu sem þú ætlar að ferðast til, mikil eða að aukast? Notum grímu á meðan á ferðalaginu stendur. Forðumst að snerta grímuna, augu, nef og munn. Höldum fjarlægð frá öðru fólki. Þvoum okkur oft um hendur og/eða notum handspritt.

Mikilvægt er að vera búin að gera ráðstafanir ef gestir og/eða heimilisfólk veikjast af COVID-19 á meðan heimsókn stendur. 

Fólk sem kemur til Íslands þarf að fara í sóttkví og gera þarf ráðstafanir í tengslum við það. Síðasti dagur til að koma heim til Íslands og vera laus úr sóttkví fyrir jól er 18.desember.

 

Líkt og á öðrum tímum þurfum við að huga að persónulegum sóttvörnum

Þvoum hendur reglulega

Virðum nálægðarmörkin

Loftum reglulega út

Notum andlitsgrímur þegar við á

Þrífum snertifleti reglulega

 

Áríðandi er að við verndum viðkvæma hópa og verndum þá yfir hátíðarnar.

Hér má sjá leiðbeiningarnar í heild sinni á covid.is