Fara í efni

Laust starf í liðveislu

08.09.2016

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir laust starf í liðveislu

Upphaf starfs: Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfshlutfall: Frá 5% upp í 20% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Starfið felst í aðstoð við fatlað fólk á heimili og í daglegu umhverfi þess.

Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða vitund fyrir sjálfum sér og hvernig hann getur nýtt hæfileika sína sem best í þágu þjónustunotenda, ríka ábyrgðartilfinningu, sýnir virðingu og háttsemi í mannlegum samskiptum og hefur skilning á mannlegum þörfum. Viðkomandi þarf að vera opinn og jákvæður í viðmóti, tilbúinn að tileinka sér nýjar hugmyndir og hafa metnað í starfi. Stundvísi er mikilvæg. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er utan dagvinnutíma og um helgar.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2016

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 453-6070 eða sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.