Fara í efni

Laust starf í heimaþjónustu

03.06.2016

Fjölskylduþjónusta Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir eftir starfsmanni í fullt starf í afleysingar við heimaþjónustu á Sauðárkróki og nágrenni. Hlutastarf kemur einnig til greina.Einnig auglýsum við eftir starfsmanni í hlutastarf austan Vatna, á Hofsósi og nágrenni.

 

Heimaþjónusta er þjónustustarf sem unnið er inni á heimili eða daglegu umhverfi þjónustuþega og byggir á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. 

 

Starfið felst í  almennum heimilisstörfum sem notandinn getur ekki leyst af hendi sjálfur og nauðsynlegu liðsinni sem stuðlar að því að auka virkni og rjúfa félagslega einangrun.

 

Öll heimaþjónusta skal veitt af virðingu fyrir notandanum og í samráði við hann.

Hæfniskröfur eru góð almenn menntun og bílpróf, næmur skilningur og hæfni í mannlegum samskiptum,  Samviskusemi, frumkvæði, áreiðanleiki og hæfileiki til að bregðast við og taka á óvæntum atvikum.

Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

 

Upplýsingar gefur Gunnar M. Sandholt, félagsmálastjóri, í síma 455 6000 eða með tölvupósti sandholt@skagafjordur.is

 

Umsóknum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.