Fara í efni

Laust starf í Árvist

21.08.2015

 

Laust starf í Árvist

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir eftir starfsmanni í Árvist. Um er að ræða tímabundið hlutastarf (50-60%) næsta skólaár, með möguleika á áframhaldandi ráðningu og er vinnutíminn eftir hádegi alla virka daga. Í starfinu felst vinna með 6-10 ára börnum ásamt ræstingu. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfnisskilyrði:

  • Uppeldismenntun æskileg og/eða reynsla af vinnu með börnum.
  • Skilyrði er að umsækjandi hafi til að bera hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Skilyrði er að umsækjandi hafi áhuga á að vinna með og umgangast börn.
  • Stundvísi, dugnaður, heiðarleiki og áreiðanleiki í starfi.

Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjöl eða Ölduna stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2015

Nánari upplýsingar um starfið veitir Vala Bára, deildarstjóri Árvistar, í síma 455-1188 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið valabara@arskoli.is.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.