Fara í efni

Laust starf í afleysingu við leikskólann Ársali

01.04.2016
Auglýst er eftir starfsmanni í laust starf

Leikskólakennari óskast í 100% stöðu við leikskólann Ársali á Sauðárkróki. Um tímabundið starf er að ræða. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem allra fyrst. Ef engar umsóknir berast frá leikskólakennurum kemur til greina að ráða til starfa umsækjanda með aðra menntun sem nýtist í starfi með leikskólabörnum, eða ófaglært. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Sólveig Arna Ingólfsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma 455-6090 eða með því að senda fyrirspurn á solveigarna@skagafjordur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2016.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Smelltu hér til að sækja um starf