Fara í efni

Laust starf á sambýlinu Fellstúni

09.09.2016

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir starf á sambýlinu Fellstúni laust til umsóknar

Upphaf starfs: Í lok október 2016. Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfshlutfall: 94% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og sinnir líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2016

Nánari upplýsingar: Edda Haraldsdóttir, forstöðumaður í síma 453-6692 eða með tölvupósti fellstun@skagafjordur.is

Umsóknir: Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.