Lausar lóðir
Í samræmi við úthlutunarreglur sveitarfélagsins, gr. 2.3. auglýsir skipulagsnefnd Skagafjarðar eina einbýlishúsalóð í Varmahlíð, tvær iðnaðar- og athafnalóðir á Sauðárkróki og eina iðnaðar- og athafnarlóð (fyrir hafnasækna starfsemi) á hafnarsvæði Sauðárkróks lausar til úthlutunar.
Auglýstar eru:
- Einbýlishúsalóðin Laugavegur 19 í Varmahlíð
- Iðnaðar- og athafnarlóðirnar Borgarteigur 6 og Borgarsíða 7 á Sauðárkróki
- Iðnaðar- og athafnarlóðin Háeyri 8 á Hafnarsvæði Sauðárkróks (ætluð fyrir hafnasækna starfsemi skv. gildandi deiliskipulagi)
Lóðirnar eru auglýstar frá og með 15. janúar 2025 til og með 31. janúar 2025.
Hægt er að skoða og sækja um lóðirnar á kortasjá Skagafjarðar, www.map.is/skagafjordur, með því að haka við „Lausar lóðir“ undir „Fasteignir“ í valglugganum.
Frestur lóðarhafa til framkvæmda er skv. 10. gr. úthlutunarreglna og greiðslur gjalda í samræmi við gildandi úthlutunarreglur og samþykkir.
Einungis er hægt að sækja um eina tilgreinda lóð og aðra tilgreinda lóð til vara, dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um tiltekna lóð.
Bent er á að fleiri íbúðarhúsalóðar standa til boða í sveitarfélaginu og eru nú þegar tilbúnar til úthlutunar. Sjá má yfirlit yfir þær á ofangreindri kortasjá sveitarfélagsins.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar