Lausar atvinnu- og athafnalóðir á Sauðárkróki við Borgarbraut 2, 4, 6, 8, 10 og 12
Þann 9. maí 2025 samþykkti skipulagsnefnd Skagafjarðar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði nr. AT-403 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir 6 nýjum lóðum við Borgarbraut. Þann 14. maí 2025 samþykktu byggðaráð og sveitarstjórn Skagafjarðar að auglýsa lóðir nr. 2, 4,6, 8, 10 og 12 við Borgarbraut lausar til umsóknar með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar á endanlegu deiliskipulagi. Meðfylgjandi myndkort sýnir auglýst lóðamörk, byggingarreiti og skipulagsskilmála. Afmörkun lóða, byggingarreita og skipulagsskilmálar geta tekið breytingum áður en deiliskipulag tekur gildi.
Sótt er um lóðir á vef Skagafjarðar,www.skagafjordur.is, undir Lausar lóðir. Að öðru leyti gilda reglur um úthlutun byggingarlóða í Skagafirði, dags. 22. sept. 2022: https://www.skagafjordur.is/static/files/Samtykktir/2022/reglur-um-uthlutun-byggingarloda.pdf.
Umsóknir skulu vera í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar dags. 22. sept. 2022 og frestur lóðarhafa til framkvæmda skv. 10. gr. úthlutunarreglna. Hægt er að nálgast úthlutunarreglur á vef sveitarfélagsins, undir Reglur og samþykktir, Húsnæðis- og fasteignamál.
Umsóknartíminn er frá 21.05.2025-05.06.2025. Einungis er hægt að sækja um eina lóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar