Fara í efni

Laufskálaréttarhelgin framundan

29.09.2017
Frá Laufskálarétt

Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að drottning íslenskra stóðrétta, sjálf Laufskálarétt, verður haldin nú um helgina.

Fjörið hefst í kvöld en kl. 20:30 verður stórsýning og skagfirsk skemmtun í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók þar sem hestar, gleði, söngur og glaðlyndir gestir verða í fyrirrúmi. Eftir skemmtun er svo tilvalið að skella sér á dúndurball með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar á Mælifelli á Sauðárkróki eða þrusuball í Miðgarði í Varmahlíð þar sem Hljómsveit kvöldsins spilar ásamt gestasöngvara.

Smölun fer svo fram í Kolbeinsdal á morgun og verður stóðið rekið þaðan og í Laufskálarétt upp úr kl. 11:30. Réttarstörf hefjast kl. 13.

Laufskálaréttarballið, fjölmennasta sveitaball landsins, verður svo haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók kl. 23 annað kvöld. Þar koma m.a. fram Eyþór Ingi, Magni og Salka Sól ásamt hljómsveitinni Von. Forsala miða er á N1 á Sauðárkróki. 16 ára aldurstakmark er á ballið.

Það verður líka mikið stuð á Hótel Varmahlíð annað kvöld þar sem Hljómsveit kvöldsins heldur uppi stuðinu fram á nótt.

Finna má frekari upplýsingar um viðburðina á hinum ýmsu facebook-síðum, m.a. Laufskálaréttarsýningar 2017, Laufskálaréttar og Laufskálaréttarballs 2017.