Landsverkefnið Göngum í skólann 2026 hófst í Árskóla í morgun
Árskóli hlaut þann heiður í ár að hýsa setningu Göngum í skólann. Setningin var á íþróttavellinum á Sauðárkróki og hófst með nokkrum orðum frá Kristjáni Bjarna skólastjóra. Því næst komu ræður frá fulltrúa ÍSÍ og Magnúsi Barðdal sveitarstjóra. Lögreglan flutti síðan stutt erindi um umferðaröryggi. Að lokinni setningu gengu nemendur, starfsfólk og gestir saman stuttan hring í nágrenninu.
Um verkefnið
Undanfarin ár hefur starfsfólk Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ farið um landið og sett Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ. Í ár var Ólympíuhlaup ÍSÍ sett í Fjallabyggð þann 3. september og setning Göngum í skólann í Árskóla í dag, föstudaginn 4. september.
Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Verkefnið stuðlar að aukinni hreyfingu og fræðslu um ávinning reglulegrar hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan.
Jafnframt er markmiðið að:
-
efla færni barna til að ferðast á öruggan hátt til skóla
-
kenna reglur um umferðaröryggi
-
draga úr umferð við skóla
-
stuðla að betra lofti og öruggara nærumhverfi
-
auka vitund um umhverfismál og „gönguvænt“ nærumhverfi
Formlegur upphafsdagur verkefnisins er 9. september n.k. Verkefnið stendur til 7. október, sem jafnframt er Alþjóðlegi göngudagur í skólann (International Walk to School Day). Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ eru viðburðir undir Íþróttaviku Evrópu