Landsmótskveðja frá sveitarstjóra – Verið velkomin í Skagafjörð
Kæru Landsmótsgestir.
Ég býð ykkur hjartanlega velkomin í Skagafjörð á Landsmót hestamanna 2026. Það er alltaf mikill heiður að fá að halda stórhátíð af þessari stærðargráðu og í leiðinni geta sýnt allt það besta sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða.
Það er óhætt að segja að Skagafjörður muni iða af lífi næstu daga, enda fram undan fjölbreytt dagskrá með einstaklega flottum sýningum, keppnum fyrir mismunandi aldurshópa og stórskemmtilegri skemmtidagskrá alla daga. Landsmótssvæðið er hið allra glæsilegasta og er öll þjónustan á svæðinu til fyrirmyndar. Hólar eru ein af okkar náttúruperlum, en það verður heldur enginn svikinn af því að taka bíltúr um fjörðinn á meðan beðið er eftir næstu keppnisgrein. Hér má finna fjórar sundlaugar, ómissandi sveitamarkaði og kökuhlaðborð, söfn og skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna ásamt allri þeirri grunnþjónustu sem ykkur getur vantað meðan á dvöl ykkar stendur. Heimasíðan visitskagafjordur.is hefur að geyma góðar upplýsingar um Skagafjörð og einnig heimasíða sveitarfélagsins, skagafjordur.is.
Það er ekkert launungarmál að í Skagafirði ríkir sterk hestamenning og kannski má ganga svo langt að segja að það sé eitt af okkar helstu kennileitum. Vegna þessa höfum við kappkostað að leggja okkur fram við að gera upplifun ykkar og heimsókn í Skagafjörð frábæra og vonandi hugsið þið hlýtt til okkar þegar landsmótinu lýkur og þið haldið heim á leið.
Íbúar Skagafjarðar eru þekktir fyrir einstaka gestrisni og ég vona innilega að þið finnið fyrir hlýjunni meðan á dvöl ykkar hér stendur. Megi vikan fram undan verða viðburðarrík og uppfull af skemmtilegum og eftirminnilegum augnablikum.
Verið ávallt velkomin í Skagafjörð og vonandi sjáumst við aftur sem allra fyrst.
Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar