Lagning ljósleiðara á Sauðárkróki
19.02.2025
Míla í samstarfi við Skagafjörð leggur ljósleiðara á Sauðárkróki sumarið 2025. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Skagafjörður var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.
Áformað er að framkvæmdir fari fram sumarið 2025 á tímabilinu júní til október. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.
Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.