Fara í efni

Lagfæringar á veginum í Austurdal

13.07.2023
Vinnuvélar í Bæjargili á Gilsbakka

Nú standa yfir lagfæringar á veginum í Austurdal, frá Stekkjarflötum að Merkigilinu. Vegurinn skemmdist illa í vatnavöxtum sl. sumar og mátti heita ófær fólksbílum. Skipta þurfti um tvö vegræsi, auk þess sem runnið hafði úr veginum og hann grafist af vatni. Hreinsa þarf frá nokkrum ræsum á vegkaflanum, einkum í Mosgili og Bæjargili. Víðimelsbræður vinna verkið sem klárast í vikulok en Skagafjörður hafði veitt 4 milljónum til viðgerða á veginum.

Þorri Árdal við vegabætur í Stekkjargili

 

Unnið í vegagerð framan Gilsbakka