Fara í efni

Kynningarfundur rammaáætlunar í Miðgarði

11.04.2016
Vesturós Héraðsvatna

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögu sinni að flokkun virkjunarkosta í menningarhúsinu Miðgarði, þann 12. apríl nk. milli kl 20-22 segir í fréttatilkynningu frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Á fundinum mun verkefnisstjórn kynna tillögudrögin og sitja fyrir svörum að kynningu lokinni. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Fundurinn er öllum opinn og ekki er þörf á að skrá sig.

Fundurinn er einn af átta fundum sem verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar stendur fyrir til að kynna drög að tillögu sinni að flokkun virkjunarkosta, sjá frétt á vef rammaáætlunar,  http://www.ramma.is/frettasafn/kynningarfundir-um-drog-ad-tillogu-verkefnisstjornar.

Hlekkur á viðburðinn á Facebook er hér: https://www.facebook.com/events/599966116823627/