Fara í efni

Kvöldopnun, bændamarkaður og Rakelarhátíð

04.10.2019
Séð yfir gamla bæinn á Króknum

Í kvöld, 4. október, verður notaleg stemming í Aðalgötunni á Sauðárkróki því fyrirtækin í götunni hafa tekið sig saman og ætla að hafa opið kl 20-22.  Það er því um að gera að nota tækifærið, rölta í gamla bænum, njóta mannlífsins og þeirra viðburða sem í boði eru.

Á laugardaginn verður bændamarkaður í Pakkhúsinu á Hofsósi milli kl 13 og 16. Það er Matarkistan Skagafjörður sem stendur fyrir markaðinum og í boði verður m.a. mikið af ferskum vörum beint frá býli.

Rakelarhátíðin, árleg fjáröflunarhátíð Minningarsjóðs Rakelar Pálmadóttur, verður í Höfðaborg á Hofsósi sunnudaginn 6. október kl 14. Nemendur Grunnskólans austan Vatna skemmta gestum og tónlistaratriði verða í flutningi nemenda Tónlistarskólans og Steinars Gunnarssonar. Ræðumaður þetta árið er Hjörvar Árni Leósson og er aðgangseyrir 2.500 kr fyrir 16 ára og eldri. Að venju endar samkoman á glæsilegu kaffihlaðborði.