Fara í efni

Kveðja til Grindvíkinga

14.01.2024

Fyrir hönd Skagfirðinga sendir sveitarstjórn Skagafjarðar hlýjar kveðjur til íbúa Grindavíkur. Það er átakanlegt að verða vitni að þeim náttúruhamförum sem dynja yfir öflugt og samheldið samfélag í Grindavík. Íslenska þjóðin hefur áður sýnt að hún stendur saman sem einn maður þegar ægimáttur náttúruafla minnir á sig og enn mun reyna á í aðgerðum á vettvangi og úrvinnslu og stuðningi við íbúa að yfirstandandi hamförum loknum. Hugur okkar allra er hjá íbúum Grindavíkur. Viðbragðsaðilum og almannavörnum óskum við alls hins besta í þeim krefjandi aðstæðum sem nú eru uppi.