Fara í efni

Króksmót og tivolí á Sauðárkróki um helgina. Sundlaugin opin til kl. 20 á laugardag.

05.08.2022
Sundlaug Sauðárkróks

Það verður nóg um að vera á Sauðárkróki um helgina en þá fer hið árlega Króksmót fram ásamt því að tivolí er mætt í heimsókn. Af þessu tilefni hefur opnunartími Sundlaugar Sauðárkróks verið lengdur á laugardaginn og verður laugin opin frá kl. 10:00 - 20:00. 

Sundlaug Sauðárkróks er því opin sem hér segir um helgina:

Föstudagur 06:50 - 21:00

Laugardagur 10:00 - 20:00

Sunnudagur 10:00 - 17:00