Fara í efni

Kostnaður við húshitun reynist hvað lægstur á landinu í Skagafirði

08.03.2018
Merki Skagafjarðarveitna

Byggðastofnun hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húshitun, á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum og nokkrum stöðum í dreifbýli, á ársgrundvelli frá árinu 2013. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350m3.

Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar nánar kemur í ljós að kostnaður við húshitun er hvað lægstur á landinu þar sem hitaveita er komin í Skagafirði, en kostnaður við húshitun er aðeins lægri á Seltjarnarnesi, Flúðum, Grindavík og Keflavík.

Þegar litið er til orkukostnaðar alls sést að hann er einnig hvað lægstur á Sauðárkróki af þeim stöðum sem kannaðir voru en af 36 svæðum voru aðeins 6 þéttbýlisstaðir með lægri orkukostnað alls þegar litið er til algengasta verðs á heildarorkukostnaði á hverjum stað. Rafmagnsverð er hærra hjá notendum í dreifbýli.

Sjá nánar á vef Byggðastofnunar.