Kosningar 2026 - hafðu áhrif og mættu á kjörstað
Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir íbúa mestu máli í daglegu lífi.
Það að nýta kosningaréttinn sinn er sterk leið til að taka þátt í lýðræði og móta framtíð samfélagsins. Þegar íbúar mæta á kjörstað eykst vægi málefna og með góðri þátttöku tryggja íbúar að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri.
Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki þegar kemur að hinu daglega lífi íbúa og sjá meðal annars um leik- og grunnskóla, samgöngumál, íþrótta- og æskulýðsmál, samgöngur, húsnæðismál, skipulag hverfa og ýmsa frístundaþjónustu. Allt hlutir sem hafa bein áhrif á lífsgæði fólks, þar með talið ungs fólks og innflytjenda. Þegar íbúar kjósa styrkja þeir rödd sína í ákvarðanatöku og hjálpa sveitarfélögum að taka ákvarðanir sem endurspegla raunverulegar þarfir og væntingar íbúa þeirra.
Sveitarfélagið hvetur öll til þess að mæta, hafa áhrif, taka þátt og mæta á kjörstað.