Fara í efni

Konur úr sveitarstjórn flagga fyrir meistaraflokki kvenna í knattspyrnu

16.09.2022
Jóhanna Ey, Sólborg, Hrund, Sigurlaug Vordís og Álfhildur sáu um að flagga í dag.

Sem kunnugt er fer úrslitaleikur Lengjudeildarinnar árið 2022, á milli Tindastóls og FH, fram á Sauðárkróksvelli kl. 19:15 í kvöld. Spennustigið fer vaxandi á svæðinu og ljóst að stemmingin á vellinum verður mikil. FISK Seafood býður öllum frítt inn á völlinn.

Með sigri geta stelpurnar okkar tryggt sér efsta sætið í deildinni en bæði lið hafa nú þegar tryggt sér sæti í Bestu deild kvenna á næsta ári.

Í tilefni dagsins tóku nokkrar vaskar konur úr sveitarstjórn Skagafjarðar það að sér fyrir hönd sveitarstjórnar að flagga fyrir stelpunum okkar fyrir framan vallarsvæðið við Skagfirðingabraut.