Fara í efni

Könnun vegna fyrirhugaðrar ljósleiðaravæðingar í þéttbýli í Skagafirði

23.08.2024

Fjarskiptasjóður áformar framhald af verkefninu Ísland ljóstengt með það að markmiði að ljúka styrktri ljósleiðaravæðingu heimilisfanga með eitt eða fleiri lögheimili í öllum þéttbýlisstöðum og byggðakjörnum landsins fyrir árslok 2026.

Sveitarfélögum stendur til boða 80.000 kr. styrkur til að tengja hvert styrkhæft staðfang sem ekki hefur aðgang að ljósleiðaratengingu og engin áform fjarskiptafyrirtækja ná til.

Byggðarráð Skagafjarðar hefur tekið ákvörðun um að þiggja tilboð fjarskiptasjóðs og vill því kanna áhuga fjarskiptafyrirtækja á að taka að sér uppbyggingu og rekstur ljósleiðaraneta í þéttbýli í Skagafirði fyrir árslok 2026.

Áður en verkefninu verður hrundið af stað þarf sveitarfélagið að fá upplýsingar um eftirfarandi:

  • Hvort fjarskiptafyrirtæki áformi að tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum í Skagafirði.
  • Hvort fjarskiptafyrirtæki áformi að leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði eða lagnaleið sem sveitarfélagið styrkir.
  • Hvernig fjarskiptafyrirtæki áformi framkvæmd uppbyggingar ljósleiðarakerfisins hvað varðar forgangsröðun og tímasetningar.

Þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga geta haft samband við Skagafjörð fyrir klukkan 12 þann 2. september n.k. í netfangið skagafjordur@skagafjordur.is