Fara í efni

Kjörstaðir við Alþingiskosningar

29.09.2016

Samþykkt var á fundi Sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 20. september sl. að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem fram fara þann 29. október 2016 verði eftirtaldir:

  • Skagasel,
  • Bóknámshús FNV,
  • Félagsheimilið Árgarður,
  • Grunnskólinn á Hólum,
  • Félagsheimilið Höfðaborg á Hofsósi
  • Grunnskólinn á Sólgörðum,
  • Varmahlíðarskóli
  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.


Einnig samþykki sveitarstjórn að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna:
Að staðfesta kjörskrá og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar."

 

Á upplýsingaveitu Innanríkisráðuneytisins er hægt að skoða hvar viðkomandi er á kjörskrá.