Fara í efni

Kennsla fellur niður í Varmahlíðarskóla

10.12.2014

Nú gengur djúp lægð yfir landið og er skollin á stórhríð í Skagafirði. Því hefur kennslu verið aflýst í Varmahlíðarskóla í dag, miðvikudaginn 10. desember. Hringt hefur verið í foreldra nemenda og þeir látnir vita.