Fara í efni

Jónsmessuhátíð um helgina

15.06.2017
Hofsós

Hin árlega Jónsmessuhátíð á Hofsósi verður um helgina 16.-17. júní og hefst hátíðin með Jónsmessugöngu kl 18 á föstudeginum. Mæting er við Höfðaborg og er gengið frá Stafnshóli að Miðhúsum um Axlarveg. Íslensk kjötsúpa er í boði kl 19 og kvöldvaka kl 21 þar sem Hrafnhildur Víglundsdóttir Voice stjarna kemur fram ásamt fleirum.

Hofsósingar bjóða heim í morgunkaffi milli kl 10 og 12 á laugardagsmorgninum og knattspyrnumót hefst á Hofsósvelli kl 10:30. Það verður margt til skemmtunar og skoðunar á Hofsósi á laugardeginum, myndlistarsýning, hópreið hestamanna, dráttarvélaakstur, leiktæki fyrir börnin, grillveisla í hádeginu og fjölskylduball kl 16. Um kvöldið verður varðeldur og brekkusöngur í Kvosinni kl 21 og ball í Höfðaborg kl 23.

Allar nánari upplýsingar má finna á facebook síðu hátíðarinnar og í KS Hofsósi.