Fara í efni

Jónsmessuhátíð á Hofsósi

16.06.2016
Hofsós

Um helgina verður hin árlega Jónsmessuhátíð á Hofsósi með ýmsum uppákomum og föstum liðum. Hátíðin hefst í kvöld með opnun sýningar á verkum Hallrúnar frá Tumabrekku í grunnskólanum. Hofsósingar bjóða í morgunkaffi á föstdagsmorgninum og ganga með leiðsögn verður í Þórðarhöfða kl 15. Kjötsúpan verður á sínum stað um kvöldið og kvöldvakan í Höfðaborg ásamt sundlaugarpartýi fyrir unglingana.

Laugardagurinn hefst með knattspyrnumóti á Hofsósvelli, myndasýningu að hætti Sillu Páls og tjaldmarkaði. Grillveisla er í hádeginu og eftir hana er hópreið hestamanna og góðakstur dráttarvéla og bændafitness.

Það verður nóg við að vera hjá börnunum en barnadagskráin hefst kl 13. Andlitsmálun, hoppukastalar, fígúrur koma í heimsókn og kl 14:45 verður tónlistarskemmtunin Frá Ara til Aladdín í Höfðaborg. 

Fótboltaáhugamenn þurfa ekki að örvænta því leikur Íslendinga gegn Ungverjalandi verður sýndur á tjaldi í Höfðaborg kl 16. Fjölskylduball verður kl 20 og stórdansleikur kl 23 þar sem hljómsveitin Spútnik leikur fyrir dansi. Það verður því mikið líf fjör á Hofsósi um helgina.

Dagskrá Jónsmessuhátíðar.