Fara í efni

Jólavaka Grunnskólans austan Vatna 12. desember

11.12.2013

Jólavaka Grunnskólans austan Vatna verður haldin fimmtudaginn 12. desember í félagsheimilinu Höfðaborg kl. 20:30. Þar geta allir upplifað notalega jólastemmingu, segir á heimasíðu skólans, þar sem nemendur stíga á stokk. Einnig koma fram hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannesdóttir  en þau eru að gefa út disk fyrir jólin. Ræðumaður kvöldsins verður séra Sólveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum.