Fara í efni

Jóladagatal Skagafjarðar komið í loftið

01.12.2022

Í desember verður opið jóladagatal fyrir alla fjölskylduna. Dagatalið er hugsað til gamans með hugmyndum af samverustundum fjölskyldunnar í desember fram að jólum. Smellt er á hvern dag fyrir sig og upp koma hugmyndir sem hægt er að nota eða breyta aðeins eins og hverjum og einum hentar.

Til þess að opna dagatalið er farið inn á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is og smellt á myndina "Jóladagatal Skagafjarðar" efst á síðunni.

Hér er hlekkur á dagatalið.

Þess má einnig geta að jóladagskrá Skagafjarðar, þar sem haldið er utan um viðburði í Skagafirði á aðventu og jólum er að finna í viðburðardagatalinu neðst á heimasíðu. Jóladagskrá Skagafjarðar birtist einnig í Sjónhorninu í hverri viku fram að jólum.