Fara í efni

Íþróttamiðstöðin í Varmahlíð óskar eftir að ráða karlmann til starfa

22.09.2016

Íþróttamiðstöðin í Varmahlíð óskar eftir að ráða karlmann til starfa

Upphaf starfs: 1. desember 2016 eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 70% starfshlutfall. Um framtíðar starf er að ræða.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst meðal annars baðvarsla, þrif og afgreiðsla.

Menntunar- og hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri. Æskilegt er að viðkomandi sé með björgunarsundpróf. Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera hæfni í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund.

Vinnutími: Unnið er í vaktavinnu.

Starfsheiti: Sundlaugarvörður I.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2016

Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, laus störf, eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.